Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Kjúklingur í hvítvíni

Kjúklingur í hvítvíni

Matreiðsluleiðbeiningar

Skerið kjúklinginn í 8 bita. Stráið salti og pipar á bitana. Hitið saman smjör og olíu og brúnið kjúklingahlutana með skinnhliðina niður fyrst. Setjið laukinn út í, og látið krauma þar til hann er vel mjúkur. Hellið allri fitu af pönnunni og hellið hvítvíni og kjúklingasoði yfir kjúklingabitana. Bætið hvítlauk og grænmetisbúnti út í, og kryddið með salti og pipar ef þarf. Látið suðuna koma upp og látið krauma í 15-20 mín. Færið kjúklingana upp á það fat sem á að bera þá fram á. Veiðið alla fitu ofan af soðinu og hrærið hveitið saman við hluta af fitunni. Sigtið sósuna í pott. Látið suðuna koma upp og hrærið hveiti hrærunni saman við, hrærið í allan tímann. Setjið rjómaostinn út í og látið hann bráðna. Ef sósan er of þunn má þykkja hana með örlitlu hveiti hrærðu út í afgangs fitu eða köldu vatni. Sjóðið sveppina í u.þ.b. 2 mín., dragið af hitanum ( gætið þess að sveppirnir séu smáir og allir svipaðir að stærð ). Dreifið sveppum og gljáðum lauk yfir kjúklingana.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Kjúklingur í hvítvíni

1800 g kjúklingar
30 g smjör
10 g olía
2 stk laukur stór
0,3 fla hvítvín flaska
2 dl kjúklingasoð sjá bls dl
1 stk grænmetisbúnt
4 stk hvítlauksgeirar pressaðir
0,5 tsk salt
0,3 tsk pipar
2 msk hveiti
100 g rjómaostur
200 g sveppir litlir
250 g perlulaukur gljáður

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð