Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Kjúklingur í einum grænum

Kjúklingur í einum grænum

Matreiðsluleiðbeiningar

Hlutið kjúklinginn í sundur í 8 hluta. Blandið saman brauðmylsnu, salti og pipar. Sláið saman eggi og 1 dl af mjólk. Veltið kjúklingahlutunum upp úr mjólkurblöndu, þá í brauðmylsnunni. Hitið saman smjör og olíu. Brúnið kjúklingabitana á báðum hliðum. Hellið því sem eftir er af mjólkinni í pönnuna. Setjið rjómaostinn í bitum á pönnuna á milli kjötbitanna. Setjið paprikusneiðarnar yfir. Bakið við 175°C., í 20 mín. Takið úr ofninum og stráið ostinum yfir. Bakið áfram í 10 mín. Hægt er að nota annan rifinn ost, t.d. 26%. Berið fram með kartöflum eða hrísgrjónum.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Kjúklingur í einum grænum

1 stk kjúklingar
1 stk egg
2,5 dl mjólkdl
0,5 dl brauðmylsna dl
0,25 tsk salt
0,25 tsk pipar
30 g smjör
2 msk olía
200 g rjómaostur hreinn
2 stk paprika sneiðar
3 msk parmesan ostur rifinn

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð