Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Kjúklingur frá Mexíkó

Kjúklingur frá Mexíkó

Matreiðsluleiðbeiningar

Kjúklingur: Skerið laukinn í tvennt. Hitið vatnið að suðu og látið lauk, hvítlauk, lárviðarlauf, tímían, pipar, salt og kjúklingabringur út í. Látið sjóða í 25 mín. Dragið af hitanum og látið kjötið kólna í soðinu. Takið bringurnar upp og látið leka vel af þeim og þerrið. Geymið soðið. Enchiladas: Setjið chilipiparinn undir grill þar til húðin fer að brúnast, snúið oft. Setjið í plastpoka og lokið vel og látið standa í 5 mín. Takið úr pokanum og hreinsið húðina af undir rennandi köldu vatni (notið hanska). Opnið chilíið og hreinsið innan úr því og saxið síðan chilíið gróft. Blandið saman ediki og vatni, setjið chili út í og látið standa í 30 mín. Takið upp og látið leka vel af því, geymið vökvann. Setjið chili, hvítlauk, lauk, oreganó, cumin, pipar, salt og 1/2-1 bolla af ediksblöndunni í víða skál. Hitið olíuna. Takið tortillas, eitt í einu, og dýfið í sósuna og látið leka það mesta af og setjið síðan í olíuna. Þegar tortillas fer að mýkjast, brjótið það þá saman í tvennt, snúið því við og steikið áfram en ekki þar til það verður stökkt. Farið varlega þar sem olían vill spýtast svolítið. Haldið enchiladas heitu inni í ofni. Steikið kjúklingabringurnar í sömu olíunni. Takið bringurnar í bita. Setjið salatið á átta diska. Raðið 3 enchiladas ofan á, og þar á kjúklingabitunum. Stráið lauk, osti og chili yfir og hellið tómatsósu (tomatosauce úr dós) yfir. Berið fram með kartöflum og gulrótum.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Kjúklingur frá Mexíkó

0 g kjúklingar:
1,5 l vatn l
1,5 stk laukur
6 stk hvítlauksgeirar heilir
2 stk lárviðarlauf
0,25 tsk timian
1 tsk pipar
0,5 tsk salt
5 stk kjúklingabringur
0 g enchiladas:
0,25 bolli edik
1,5 dl vatn dl
6 stk chili pipar
4 stk hvítlauksgeirar heilir
0,5 stk laukur saxaður
1 tsk oreganó
0,25 tsk cumin
0,5 tsk pipar
0,1 tsk salt
1 bolli ólífuolía
24 stk tortillas meðalstórar
0 g meðlæti:
1 stk jöklasalat
1 stk laukur stór saxaður
1 stk salt
1 tsk oreganó
3 bolli tómatsósa út
2 bolli fetaostur mulinn
8 stk chili pipar
8 stk gulrætur
19,42 stk kartöflur

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð