Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Kjúklingapottur

Kjúklingapottur

Matreiðsluleiðbeiningar

Grænmetisbúnt =( 1 lárviðarlauf, 1 grein af bómðberg ( timían), 1 grein rósmarin, 8 greinar steinselja ) Hreinsið fuglana og skerið þá í 8 hluta hvorn. Stráið salti og pipar á hlutana og veltið þeim upp úr hveitinu. Bindið saman það sem á að fara í grænmetisbúntið. Skerið beikonið í lítlar ræmur, og hreinsið sveppina en hafið þá heila. Hitið olíu og smjör saman á pönnu. Látið lauk, beikon og sveppi krauma í feitinni þar til mjúkt. Takið upp og setjið í skál. Brúnið kjúklingahlutana á öllum hliðum. Hellið koníakinu yfir og kveikið í. Hellið rauðvíninu yfir bætið grænmetisbúnti, hvítlauk, salti, pipar, múskati og sykri út í. Látið sjóða í 1 klst. Bætið sveppablöndunni út í og látið sjóða í 1/2 klst. Takið kjúklingahlutana upp úr og raðið þeim á fat. Fjarlægið grænmetisbúntið. Sjóðið sósuna kröftuglega í 2-3 mín. Bætið rjómaostinum út í og látið hann bráðna. Hellið sósunnni yfir kjúklingahlutana. Berið strax fram. Gott er að bera ristaða brauðteninga með.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Kjúklingapottur

2 stk kjúklingar
1 tsk salt
0,5 tsk pipar malaður
0,5 dl hveiti dl
1 stk grænmetisbúnt
100 g beikon
24 stk sveppir litlir
1 msk olía
50 g smjör
24 stk sýrðir laukar
2 msk koníak
0,75 l rauðvín l
3 stk hvítlauksgeirar afhýddir
0,25 tsk múskat nýrifið
1 tsk sykur
100 g rjómaostur

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð