Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Innbakað lambalæri með kryddbragði

Innbakað lambalæri með kryddbragði

Íslenska lambakjötið stendur ávallt fyrir sínu, innbakað verður það safaríkt og gott.

Matreiðsluleiðbeiningar

Blandið saman kryddi og nuddið vel utan á kjötið. Látið bíða í u.þ.b. 1 klst. Setjið kjötið í heitan ofn 160°C og steikið í 1-1½ klst. Hellið vatni í ofnskúffuna þegar steiking er hálfnuð. Takið kjötið út og látið það kólna, geymið soðið. Fletjið smjördeigið út, stærra en kjötvefjuna. Rúllið því utan um kjötið, penslið samskeytin með vatni og þrýstið saman með gaffli. Skreytið með utanafskurði og penslið með eggjablöndu.

Steikið í ofni við 180°C í 40-50 mín. þar til deigið er fallega brúnt.

Látið bíða í 15 mín. áður en borið er fram.

Sósa:
Hellið soði frá fyrri steikingu og vatni í pott og bætið kjötkrafti, kryddi og rjómanum saman við. Sjóðið við vægan hita í 5-7 mín. Jafnið með hveitijafningi og sjóðið í 3-5 mín. Litið sósuna.

Skerið kjötið í sneiðar og berið fram með soðnum kartöflum og soðnu grænmeti.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

innbakað lambalæri með kryddbragði

1 meðalstór/t lambalæri (úrbeinað/uð)
1 tsk salt
0,5 tsk rósmarín
0,25 tsk salvía (sage)
0,25 tsk pipar
300 g smjördeig
5 dl vatn
 

sósa

8 dl soð og vatn
1 tsk kjötkraftur
0,5 tsk rósmarín
0,25 tsk salvía (sage)
0,125 tsk svartur pipar
2,5 dl rjómi
1 dl vatn (kalt)
15 g hveiti
1 skm sósulitur

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð