Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Heilsteiktur kjúklingur með fáfnisgrasi

Heilsteiktur kjúklingur með fáfnisgrasi

Glansandi og góður með grænmeti og kartöflum.

Matreiðsluleiðbeiningar

Hreinsið kjúklinginn og þerrið. Blandið saman olíu (má nota brætt smjör) og kryddi. Stráið salti inn í kjúklinginn og penslið að utan með kryddblöndunni. Steikið kjúklinginn við 170°C í 1-1,5 klst. Snúið hryggnum upp fyrstu 20 mín. en bringunni seinni hlutann af steikingartímanum.

Passið vel að kjúklingurinn sé full steiktur.

Sósa:
Hellið soði úr skúffunni og bætið við vatni þannig að verði 2 dl. Bætið rjóma við ásamt krafti. Látið sjóða við vægan hita í 5-10 mín. Jafnið með maísenamjöli. Bragðbætið sósuna og litið með örlitlum matarlit ef vill.

Berið fram með grænmeti og kartöflum



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

heilsteiktur kjúklingur

1 kjúklingur/ar
2 msk olía
1 tsk hvítlaukssalt
1 tsk fáfnisgras (mulið tarragon)
0,5 tsk svartur pipar
1 tsk salt
 

sósa

2 dl soð og vatn
2,5 dl rjómi
1 tsk kjúklingakraftur
1 skm maísenamjöl

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð