Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Hátíðarkalkúnn

Hátíðarkalkúnn

Kalkúnn verður sífellt algengari á hátíðarmatseðlum Íslendinga enda um magurt og hollt kjöt að ræða.  Hér er uppskrift sem er sannkallaður hátíðarmatur, með sykurbrúnuðum kartöflum, ananassalati, korni og sósu.

Matreiðsluleiðbeiningar

Þvoið fuglinn og þerrið vel að utan og nuddið vel með öllu kryddinu. Kryddið með blöndu af salti og pipar að innan. Smyrjið hluta af bræddu smjörinu utan á fuglinn. Setjið fyllinguna inn í magahólfið og lokið fyrir með álpappír eða saumið fyrir með rúllupylsugarni. Athugið að troða ekki fyllingunni um of í magaopið því hún þenst út. Bindið fæturna saman. Steikið fuglinn við 160-170°C, með bringuna niður, á grind ofan á ofnskúffu í u.þ.b. 40 mín. Snúið kalkúninum þá við og steikið áfram. Penslið tvisvar til þrisvar með bræddu smjörinu á steikingartímanum. Gott er að hella sjóðandi vatni í ofnskúffuna seinni hluta tímans. Kalkún þarf að steikja í u.þ.b. 30 mín. á hvert kg eða u.þ.b. 2½ tíma fyrir 4,5 kg fugl eða þar til safinn er orðinn tær ef stungið er með prjóni þar sem fuglinn er þykkastur. Ef læri eða bringa dökkna um of er gott að setja álpappír yfir.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Hátíðarkalkúnn

4,5 kg kalkúnn
50 g smjör
2 tsk salt
1 tsk pipar
1,5 tsk oregano
0,5 tsk salvía (sage)

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð