Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Grilluð nautasteik með steiktu grænmeti

Grilluð nautasteik með steiktu grænmeti

 

Veisluréttur með nautakjöti með steiktu grænmeti, mjúkri kartöflumús og kremaðri sveppasósu
sem hentar við allar hátíðir.

Rétturinn er eftir Gunnar Karl yfirkokk á veitingastaðnum Vox.

Matreiðsluleiðbeiningar

 

Fyrir nautið
Grillið kjötið vel og fallega. Setjið í eldfastmót. Bræðið smjörið ásamt kryddunum og lauknum. Hellið yfir steikina og bakið við 150°C uns kjarnhiti hefur náð 52°C.

Fyrir grænmetið
Skrælið grænmetið og skerið í hæfilegar stærðir. Setjið í eldfast mót með restinni af innihaldinu nema sítrónunni. Lokið með álpappír og eldið við 150 gráður uns meyrt. Kryddið með salti og pipar og sítrónuskel.

Fyrir kartöflunar
Sjóðið kartöflurnar uns meyrar. Kremjið í gegnum kartöflumúsara og pískið upp með restinni af innihaldinu og bragðbætið með salti.

Fyrir sveppasósuna
Steikið sveppina upp úr smjöri. Bætið smá ediki út á og sjóðið uns það er gufað upp. Bætið þá soðinu út á og sjóðið niður um rúmlega helming. Setjið þá rjómann og ostinn út í og sjóðið hæfilega þykkt. Smakkað til með salti og pipar.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Fyrir nautið

1,2 kg nautalundir
0 timian
0 hvítlaukur
0 olía
0 smjör
 

Fyrir grænmetið

6 meðalstórar gulrætur
3 steinseljurætur eða nípur
0,5 selleryrót
0 timian
0 rosmarin
2 hvítlauksgeirar
0 olífuolía
1 skel af einni sítrónu
 

Fyrir kartöflunar

4 bökunarkartöflur
2 dl rjómi
1 dl vatn
100 g smjör
0 salt
 

Fyrir sveppasósuna

0 saxaðir svepppir, magn eftir smekk
0 ögn raðvínsedik
0 nautasoð eða vatn og kraftur
3 dl rjómi
0 hvítlauksostur

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð