Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Gæs með rjómasósu

Gæs með rjómasósu

Þessi hátíðarfugl hentar vel á jólum og páskum.

Matreiðsluleiðbeiningar

Þvoið gæsina að utan og innan og þerrið vel. Stráið blöndu af salti og pipar inn í og utan á. Setjið fyllinguna inn í og lokið með prjóni eða saumið fyrir. Steikið á grind ofan á ofnskúffu við u.þ.b. 170°C í 2-3 tíma (50 mín. fyrir hvert kg). Hellið 1/2 l af soðnu vatni í skúffuna seinni hluta tímans.

Fylling:
Leggið sveskjur og epli í bleyti í kalt vatn í u.þ.b. 1 klst. Saxið lauk og látið krauma í smjöri ásamt hakki þar til það verður ljósbrúnt. Smækkið epli og sveskjur og blandið í ásamt vökvanum af ávöxtunum. Kryddið. Látið krauma í 5-8 mín. Kælið aðeins áður en sett er inn í fuglinn.

Sósa:
Síið soðið (7 dl) í pott og fleytið mestu fituna ofan af. Stráið hveitinu yfir og bíðið þar til það botnfellur. Hrærið vel í og sjóðið. Bætið rjóma, súpukrafti eða madeira (eða púrtvíni) og rifsberjahlaupi út í og sjóðið við vægan hita í 5 mín. Bragðbætið með salti og pipar.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

gæs

2,5 kg gæs
2 tsk salt
1 tsk svartur pipar
5 dl vatn (heitt)
 

fylling

1 laukur/ar
15 g smjör
200 g svínahakk
200 g þurrkuð epli
200 g sveskjur
0,3 dl rjómi
2 msk steinselja
2 tsk einiber (mulin)
1 skm salt og pipar
 

sósa

7 dl soð og vatn
40 g hveiti
1 dl rjómi
5 msk madeira
1,5 tsk súpukraftur
1,5 msk rifshlaup
1 skm salt og svartur pipar

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð