Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Fyllt kjötrúlla

Fyllt kjötrúlla

Matreiðsluleiðbeiningar

Raðið kjötsneiðunum í þunnt lag á blauta diskaþurrku, látið þær ganga hverja inn á aðra. Blandið saman hakki, brauðmylsnu og rifna ostinum. Bætið söxuðu eggjunum og hráa egginu saman við. Kryddið með salti, pipar, múskati og kanil. Breiðið hakkblönduna yfir kjötsneiðarnar, en ekki alveg út á brúnir. Raðið salamisneiðunum ofan á eftir endilöngu, þá ostsneiðunum og þar ofan á eggjunum í eina röð. Rúllið kjötinu þétt upp með hjálp diskaþurrkunnar. Takið rúlluna og bindið þétt upp með sláturgarni. Hitið olíuna í potti og látið lauk, gulrót og sellerí krauma þar til vel mjúkt. Blandið tómatpurée saman við, látið sjóða í 10 mín. Ef blandan verður of þurr má væta í henni með safanum af tómötunum. (dós 400 g )Látið leka vel af tómötunum og bætið þeim út í. Kryddið með salti, pipar, múskati og kanil. Látið krauma í 15 mín. Setjið rúlluna í pott og hellið tómatsósunni yfir, hellið víninu yfir og kveikið í. Bætið vatni í, þannig að rétt fljóti yfir. Látið malla undir loki í 1 1/2 klst. Bætið meira vatni í ef þarf. Takið rúlluna upp og takið bandið af, skerið rúlluna í sneiðar. Berið fram heitt eða kalt. Raðið sneiðunum á fat skreyttu með hlaupi (Toro) bragðbættu með sérrí eða púrtvíni. Sjóðið sósuna niður um helming, berið hana fram með.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Fyllt kjötrúlla

700 g kálfakjöt beinlaust skorið í þunnar sneiðar
300 g kálfakjötshakk
75 g brauðmylsna ókrydduð
75 g parmesan ostur nýrifinn
2 stk egg harðsoðið saxað
1 stk egg
0,5 tsk salt
0,5 tsk pipar malaður
0,25 tsk kanill
0,25 tsk múskat nýrifið
3,75 sn ostur 26% sn
50 g salamipylsa sneiðar
4 stk egg harðsoðin
5 msk ólífuolía
1 stk laukur saxaður
1 stk gulrætur söxuð
1 stk sellerístilkar saxaðir
2 msk tómatpure
1 dós tómatar
1 stk negulnaglar
1 msk rauðvín

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð