Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Engiferönd

Engiferönd

Tilvalin á veisluborðið. Berið snöggsoðnar perur eða epli með öndinni ásamt kartöflum, rauðkáli og/eða soðnu grænmeti.

Matreiðsluleiðbeiningar

Hreinsið fuglinn og þerrið, stráið kryddblöndunni inn í og utan á.

Fylling:
Hreinsið sveppi, flysjið lauk og epli, takið kjarnahúsið úr eplinu. Maukið sveppi, lauk, epli og sveskjur í matvinnsluvél. Blandið mauki, raspi, vökva (má nota rjóma í staðinn fyrir mjólk) og kryddi í brætt smjör á pönnu og látið krauma í 2-3 mín. Setjið fyllinguna inn í fuglinn og lokið með kjötprjóni. Steið í ofni við 160°C í 1½ klst. Hellið vatni í skúffuna síðustu ½ klst.

Sósa:
Sigtið soð og fleytið fituna að mestu ofan af. Mælið soðið í pott og bætið vatni út í þannig að verði 6 dl. Stráið hveiti yfir og bíðið þangað til að það botnfellur. Hitið. Setjið krydd og marmelaði saman við. Hrærið vel í á meðan suðan kemur upp. Bætið rjóma út í og sjóðið við vægan hita í 5-10 mín. Setjið koníak (eða madeira) út í (má sleppa) og kryddið ef með þarf.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

engiferönd

1 önd/endur
2 tsk salt
0,5 tsk svartur pipar
 

fylling

100 g sveppir
80 g laukur
1,5 epli
10 sveskja/ur (steinlaus/ar)
1 dl brauðmylsna
0,75 dl mjólk
1,5 tsk engifer (ferskt)
1 tsk salt
15 g smjör
 

sósa

6 dl soð og vatn
1 tsk kjúklingakraftur
0,5 tsk kjötkraftur
25 g hveiti
2,5 dl rjómi
0,75 tsk engifer (ferskt)
1,5 msk appelsínumarmelaði
1 skm salt og pipar
1,5 msk koníak

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð