Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Appelsínugljáðar kjúklingabringur

Appelsínugljáðar kjúklingabringur

Matreiðsluleiðbeiningar

Skerið bringurnar í tvennt. Stráið salti á bringurnar og brúnið þær í smjöri. Takið af pönnunni. Hrærið hveiti, sykri og kryddi út í pönnuna. Bætið appelsínusafa út í, þá rjómaosti og hrærið í þar til hann er bráðinn. Látið suðuna koma upp og hrærið í þar til þykknar. Ef að sósan verður of þykk þá þynnið hana með appelsínusafa eða vatni. Setjið kjúklingabringurnar út í og látið malla í 1 klst., undir loki. Berið fram með hrísgrjónum.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Appelsínugljáðar kjúklingabringur

4 stk kjúklingabringur
0,5 tsk salt
75 g smjör
2 msk hveiti
2 msk sykur
0,25 tsk sinnepsduft
0,25 tsk kanill
0,1 tsk engifer
110 g rjómaostur m/appelsínu og krókant
1,5 bolli appelsínusafi

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð