Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kartöfluréttir > Kartöfluréttur með basilíku

Kartöfluréttur með basilíku

Æðislegur með grilluðu kjöti eða piparbrauði.

Matreiðsluleiðbeiningar

Skerið hráar kartöflurnar í jafnar sneiðar (notið hýði ef það er gott), saxið blaðlauk frekar gróft og skerið tómata í sneiðar. Látið lauk krauma í olíu á pönnu. Bætið papriku, eldpipar og basilíku út í og látið krauma. Blandið kartöflum og tómötum saman við og látið krauma. Blandið soði af papriku og matreiðslurjóma út í ásamt grænmetiskrafti og örlitlu af svörtum pipar. Jafnið með maísenamjöli. Saltið og kryddið ef þarf. Hellið í eldfast mót og bakið í ofni við 180-200°C í 40-50 mín. eða þar til kartöflurnar eru soðnar. 



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

kartöfluréttur með basilíku

0,45 kg hráar kartöflur
4 tómatur/ar
1 blaðlaukur/ar (stór/ir)
5 msk niðursoðin paprika
2 msk paprikusoð
2 msk fersk basilíka
0,5 eldpipar (chili)
3 dl matreiðslurjómi
2 tsk grænmetiskraftur
1 skm salt og svartur pipar
2,5 msk maísenamjöl

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð