Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Jólauppskriftir > Veislubrauð með jógúrt, valhnetum og trönuberjum

Veislubrauð með jógúrt, valhnetum og trönuberjum

Matreiðsluleiðbeiningar


Aðferð:
Setjið gerið í litla skál með 2 msk. af volgu vatni og 1 tsk. af sykri og látið standa í um 10 mínútur. Hnoðið allt nema Maldon-saltflögurnar lauslega saman í hrærivél. Setjið deigið í skál ásamt u.þ.b. einni lófafylli af rúgmjöli sem sett er undir og yfir deigið. Breiðið plastfilmu yfir skálina og látið deigið hefa sig í u.þ.b. 1 klukkustund. Geymið það svo yfir nótt í kæliskáp en hægt er að geyma það með góðu móti í allt að 4 daga. Takið deigið úr kæliskápnum og mótið brauðhleif. Látið hann hefast í 1–1½ klst.
á hlýjum stað og breiðið plastfilmu yfir. Á meðan er ofninn hitaður í 250°C. Penslið brauðhleifinn með vatni og stráið saltflögum yfir hann áður en hann er settur í ofninn. Lækkið hitann í 200°C og bakið brauðið í 40-50 mínútur. Takið það úr ofninum og látið kólna á bökunargrind. Brauðið geymist vel innpakkað í viskustykki í allt að 3 daga.






Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Brauð

50 g ferskt ger eða 11 g þurrger
2 msk. volgt vatn
1 tsk. sykur
300 g brauðhveiti
200 g rúgmjöl
400 ml hrein jógúrt
1 egg
1 msk. sykur
1 msk. kúmen
2 tsk. salt
75 g þurrkuð trönuber, rúsínur eða grófsaxaðar þurrkaðar apríkósur
100 g valhnetur eða pekanhnetur, léttristaðar og grófsaxaðar
2 tsk. Maldon-saltflögur

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð