Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Jólauppskriftir > Vanilluís grunnuppskrift

Vanilluís grunnuppskrift

Vanilluís er sígildur og þetta er ein af þessum uppskrift-um sem auðvelt er að tileinka sér. Þessi grunnuppskrift er góð ein og sér en ef hugur stendur til má prófa hinar ýmsu bragðsamsetningar. Með stuttum könnunarleiðangri um búrskápana má ef til vill finna eitthvert góðgæti sem tilvalið er að blanda út í ísinn eða skreyta hann með. Það mætti til dæmis mylja kex eða sælgæti ýmiss konar út í ísinn, rífa súkkulaði eða bræða yfir hann, marínera rúsínur í rommi og bæta út í. Einnig er tilvalið að bæta við berjum, rista hnetur eða saxa niður þurrkaða ávexti. Þetta þarf að hræra út í ísblönduna áður en hún frýs. Möguleikarnir eru fjölmargir og kannski hittirðu á þína einu sönnu uppskrift með því að prófa þig áfram. Hver veit...

Matreiðsluleiðbeiningar

Aðferð:
Skerið vanillustöngina í tvennt eftir endilöngu og skafið fræin innan úr henni. Setjið bæði fræ og stöng í pott ásamt matreiðslurjómanum og hitið að suðu en látið þó ekki sjóða.
    Þeytið á meðan eggjarauður og sykur saman í skál. Hellið svo vanillurjómanum rólega saman við eggjarauðurnar og hrærið stöðugt í á meðan. Hellið öllu í pottinn aftur. Hafið hitann mjög vægan og hrærið stöðugt. Takið pottinn af hitanum þegar blandan fer að þykkna aðeins, hellið henni gegnum sigti í skál og látið kólna vel.
   Léttþeytið rjómann og hrærið hann gætilega saman við ísblönduna. Hellið síðan blöndunni í ísvél og frystið. Ef ekki er notuð ísvél er ísinn frystur í formi og síðan tekinn út eftir hálftíma og hrært vel í. Svo er hann settur aftur í frysti, tekinn út eftir í hálftíma og hrært í. Þetta þarf að endurtaka 3–4 sinnum.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Vanilluís grunnuppskrift

1 vanillustöng
250 ml matreiðslurjómi
5 stk. eggjarauður (5-6)
150 g sykur
250 ml rjómi

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð