Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Jólauppskriftir > Sæt kartöflumús

Sæt kartöflumús

Sæt appelsínukartöflumús
með fetaosti
fyrir 6–8

Matreiðsluleiðbeiningar

Aðferð:
Hitið ofninn í 200°C. Setjið sætu kartöflurnar í eldfast mót. Dreifið smjörinu yfir þær ásamt saxaða lauknum. Bakið kartöflurnar í um 40 mínútur eða þar til þær fara að taka lit og verða mjúkar. Gott er að hreyfa við þeim í eitt til tvö skipti á meðan þær bakast. Takið mótið úr ofninum, stappið kartöflurnar með gaffli í mótinu og blandið fetaostinum saman við ásamt appelsínusafanum og -berkinum. Blandið lauslega saman og jafnið músinni í mótið. Raðið sykurpúðunum þétt ofan á, setjið mótið aftur í ofninn og bakið í 8–10 mínútur í viðbót, eða þar til sykurpúðarnir fara að taka lit. Einnig má sleppa sykurpúðunum en baka músina jafnlengi. Berið strax fram. Kartöflumúsina má útbúa daginn áður en hita hana síðan upp í ofninum í 20 mínútur áður en hún er borin fram. Ef á að hafa sykurpúðana ofan á er þeim bætt við þegar
10 mínútur eru eftir af upphitunartímanum.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Kartöflumús

900 g sætar kartöflur, afhýddar og skornar í 2 cm bita
40 g smjör, frá MS skorið í litla bita
1 stk. laukur, fínsaxaður
325 g krukka MS Dalafeti í kryddolíu, olíunni hellt af
0 safi og fínrifinn börkur af hálfri appelsínu, (eingöngu appelsínuguli hlutinn)
0 sykurpúðar (má sleppa)

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð