Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Jólauppskriftir > Fylltar Kalkúnabringur með villisveppaostasósu, rjómasoðin seljurót og sætarkartöflum

Fylltar Kalkúnabringur með villisveppaostasósu, rjómasoðin seljurót og sætarkartöflum

Matreiðsluleiðbeiningar

Kalkúnn aðferð:
Setjið villisveppina í bleyti í sjóðandi vatn. Látið standa i 15 mínútur, veiðið sveppina upp úr vatninu og saxið fínt ásamt sveppunum. Steikið sveppina á pönnu í smjörinu og setjið í skál. Rífið niður villisveppaostinn og blandið saman við kælda sveppina, setjið saman við restina af hráefnunum og hrærið vel saman. Skerið í hliðina á kalkúnabringunni svo að myndist vasi, setjið fyllinguna í með skeið og brúnið bringurnar á pönnu. Setjið á grind og kryddið með salti, pipar og grænum pipar. Steikið við 130°C á blæstri í 45-50 mínútur.

Sósa aðferð:
Steikið sveppina og laukinn í smjörinu, bætið við kjúklingasoðinu og rjómanum. Skerið ostinn í bita og bræðið í sósunni við vægan hita, þykkið að vild.

Sætar kartöflur aðferð:
Skerið seljurót og sætar kartöflur í teninga. Setjið í eldfast mót kryddið með timjan, salti og pipar. Hellið rjómanum yfir og bakið við 150°C í u.þ.b. 35 mínútur.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Kalkúnn

1 kg kalkúnabringur
20 korn mulinn grænnpipar
0 salt og pipar
 

Fylling

20 g þurrkaðir villisveppir
100 g sveppir
1 msk. smjör
1 stk. villisveppaostur steyptur
1 stk. egg
2 dl brauðraspur
100 g pecanhnetur saxaðar
0 salt og pipar
 

Villisveppaostasósa

250 g saxaðir sveppir
100 g fínt saxaður laukur
50 g smjör
3 dl kjúklingasoð (eða vatn og teningur)
1 stk. villisveppaostur steyptur
125 g rjómaostur með svörtum pipar
5 dl rjómi
 

Rjómasoðin seljurót og sætarkartöflur

400 g seljurót
300 g sætar kartöflur
2 tsk. þurrkað timjan
1 peli rjómi
0 salt og nýmulinn svartur pipar

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð