Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Jólauppskriftir > Crème brûlée í hátíðarbúningi

Crème brûlée í hátíðarbúningi

Crème brûlée í hátíðarbúningi
fyrir 8

Matreiðsluleiðbeiningar

Aðferð:
Hitið ofninn í 140°C. Þeytið saman egg, eggjarauður og hunang þar til blandan verður ljós og þykk. Setjið matreiðslurjóma, rjóma, vanillustangir og appelsínubörk í pott og hitið að suðu. Takið af hitanum og látið standa í lokuðum pottinum í 20 mínútur.
   Takið þá vanillustangirnar upp, skafið fræin innan úr þeim og setjið þau aftur í pottinn. Hellið heitum rjómanum út í eggjahræruna, bætið rjómaostinum við og þeytið með písk þar til osturinn hefur samlagast.
   Skiptið sósunni í átta eldföst mót og setjið þau í nokkuð djúpt, stórt mót eða ofnskúffu. Hellið heitu vatni í skúffuna þannig að það nái að minnsta kosti upp að miðju á litlu mótunum. Bakið í 50 mínútur eða þar til búðingurinn er orðinn stífur. Það er hægt að sjá með því að hrista eitt mótið aðeins til. Kælið búðinginn alveg í ísskáp, a.m.k. í nokkrar klukkustundir. Takið mótin úr kæli um 30 mínútum áður en rétturinn er borinn fram. Stráið púðursykrinum jafnt yfir búðingana og brennið hann með litlum brennara. Einnig er hægt að bræða eða brenna sykurinn undir grillinu í bakarofni, þá þarf að kveikja á grillinu með góðum fyrirvara og setja mótin ofarlega í ofninn. Fylgist vel með og takið þau út um leið og sykurinn byrjar að brúnast.
   Það er tilvalið að búa eftirréttinn til daginn áður, en brenna sykurinn um hálftíma áður en hann er borinn fram. Gott er að bera fram gljáða ávexti með, t.d. epli, rabarbara eða mangó. Þá eru ávextirnir skornir í bita og léttsteiktir úr sykri og smjöri. Gott er að drekka kaffi með þessum eftirrétti.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Crème brûlée

2 stk. egg
3 stk. eggjarauður
200 g fljótandi hunang
250 ml matreiðslurjómi
300 ml rjómi
2 stk. vanillustangir, skornar í sundur eftir endilöngu
0,5 msk. fínrifinn appelsínubörkur (eingöngu
100 g rjómaostur til matargerðar
100 g ljós púðursykur

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð