Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Jólauppskriftir > Apríkósugljáður hamborgarhryggur með Madeira sósu - Jól

Apríkósugljáður hamborgarhryggur með Madeira sósu - Jól

Fyrir 6-8.

Matreiðsluleiðbeiningar

Hryggur Aðferð:
Setjið hrygginn í pott með köldu vatni og látið vatnið fljóta vel yfir kjötið. Þeir sem vilja geta bætt út í vatnið einu lárviðarlaufi og 2–3 negulnöglum. Látið suðuna koma rólega upp. Látið beinlausa hrygginn sjóða við vægan hita í minnst 55 mínútur en hrygginn með beininu um 75 mínútur. Látið kjötið standa í pottinum í 15 mínútur. Á meðan er ofninn hitaður í 250°C. Setjið hrygginn í ofnskúffu ásamt örlitlu vatni. Blandið sinnepinu saman við apríkósusultuna og brædda smjörið og þekið allan hrygginn með hjúpnum. Bakið hrygginn í 10–15 mínútur í miðjum ofninum. Gætið þess að gljáinn brenni ekki, ef hann fer að dökkna mikið á stöku stað má leggja álpappír þar yfir. Gott er að láta kjötið jafna sig í 10–15 mínútur áður en það er skorið í sneiðar.

Sósa aðferð:
Bræðið smjörið í stórum potti og stráið hveitinu yfir. Hrærið stöðugt í þar til jafningurinn er aðeins farinn að brúnast. Hellið þá síuðu soði smátt og smátt saman við og hrærið vel á meðan. Bætið Madeiravíninu við ásamt kraftinum og matreiðslurjómanum. Látið malla í minnst 5–8 mínútur. Þykkið sósuna eftir smekk með sósuþykki. 

Tilvalið meðlæti með hryggnum Waldorf salat eða Kartöflugratín gott með ( sjá undir uppskriftir : salöt)



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Hryggur

2,4 kg hamborgarhryggur, með beini eða án (2,4-3,2 kg)
1 msk. sterkt sinnep
1 krukka apríkósusulta (um 250 g)
60 g smjör
 

Madeira sósa

20 g smjör
2 msk. hveiti
500 ml soð af hamborgarhryggnum eða kjúklingasoð
150 ml Madeiravín eða púrtvín
2 tsk. svínakraftur eða kjúklingakraftur, eða eftir smekk
200 ml matreiðslurjómi
0 sósuþykkir fyrir brúna sósu, eftir smekk

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð