Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Grænmetisréttir > Yfirbökuð lauksúpa

Yfirbökuð lauksúpa

Súpa með ljúffengum smjördeigshatti.

Matreiðsluleiðbeiningar

Hreinsið og skerið grænmeti í mjóar ræmur. Látið laukinn krauma í smjörinu á pönnu um stund, (brúnið ekki). Bætið hvítkáli og gulrótum út í og látið krauma áfram. Hellið 1/2 dl af vatni yfir og látið krauma þar til laukur og grænmeti fara að linast. Setjið grænmetið í pott ásamt vatninu, kjötkrafti og sérríi (má sleppa) og sjóðið í 10-12 mín. Bætið rjómanum út í (má sleppa), kryddið með salti og pipar. Látið súpuna rjúka vel. Fletjið smjördeigið út, stærra en súpuskálina. Penslið barmana á skálinni með eggi, leggið smjördeigið yfir og þrýstið saman á brúnunum. Penslið yfir smjördeigið. Bakið við 220°C í 10-15 mín. eða þar til smjördeigið er orðið hæfilega bakað og stökkt. Berið súpuna fram heita.


Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

súpa

4 laukur/ar
100 g gulrætur
150 g hvítkál
15 g smjör
10 dl vatn
3 tsk kjötkraftur
1,5 dl rjómi
2 msk sérrí
1 skm salt og pipar
200 g smjördeig
1 egg

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð