Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Grænmetisréttir > Grænmetislasagna

Grænmetislasagna

Ofsalega gott með nýbökuðu brauði.

Matreiðsluleiðbeiningar

Meðhöndlið lasagnaplöturnar eftir leiðbeiningum á umbúðum. Skerið gulrætur í hæfilega bita eða sneiðar og spergilkál í greinar og sjóðið. Skerið púrru og lauk í sneiðar og papriku í ræmur. Léttsteikið lauk og púrru í olíu á pönnu og bætið papriku út í og látið krauma með. Bætið tómötum, kryddi, soði af grænmetinu og matreiðslurjómanum út í og látið sjóða við vægan hita í 5 mín. Bætið gulrótum og spergilkáli út í og látið sjóða í 2-3 mín, bætið við kryddi ef þarf. Jafnið með maísenamjöli. Setjið í eldfast mót, fyrst þunnt lag af grænmetissósu þá lasagnaplötur, grænmetissósu og lasagnaplötur og síðast þunnt lag af grænmetissósu. Stráið þykku lagi af rifnum osti ofan á. Bakið í ofni við 200°C í 30-40 mín. eða þar til grænmetið hefur soðið vel í gegn og osturinn er fallega gulbrúnn.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

grænmetislasagna

250 g gulrætur
400 g spergilkál
1 blaðlaukur/ar (stór/ir)
2 laukur/ar
1 paprika/ur (græn/ar)
1 paprika/ur (gula/ar)
2 hvítlauksrif
1 ds niðursoðnir tómatar
3 tsk bergmynta (oregano)
2 tsk grænmetiskraftur
0,5 tsk salt
0,5 tsk svartur pipar
1 dl grænmetissoð
5 dl matreiðslurjómi
2 msk maísenamjöl
1 skm lasagnaplötur
150 g 26 % ostur

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð