Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Grænmetisréttir > Grænmetisbakstur

Grænmetisbakstur

Matreiðsluleiðbeiningar

Sjóðið kartöflurnar. Sneiðið laukinn og látið hann krauma í 45 gr af smjöri þar til hann fer að brúnast. Setjið hann í botninn á eldföstu móti. Hreinsið og afhýðið gulræturnar og skerið þær í sneiðar. Setjið sneiðarnar í pott og vatn þannig að rétt fljóti yfir, bætið sykri og 20 gr af smjöri. Látið sjóða í 10 mín eða þar til allur vökvi er soðinn upp. Blandið steinseljunni saman við. Setjið gulræturnar yfir laukinn. Hreinsið sveppina og látið þá krauma í 30-50 gr af smjöri, setjið þá yfir gulræturnar. Takið blómkálið í hríslur og sjóðið í léttsöltu vatni í nokkrar mínútur. Setjið yfir sveppina. Afhýðið kartöflurnar, hrærið þær í sundur . Blandið smjöri, eggjarauðu og rjóma saman við. Kælið lítið eitt. Bakið upp sósu úr smjöri, hveiti og mjólk. Kryddið með salti, pipar og múskati. Bætið ostinum saman við. Breiðið sósuna yfir grænmetið. Sprautið hrærðu kartöflunum yfir sósuna. Setjið mótið í plastpoka og lokið vel og setjið í frost. Látið standa við stofuhita í 3-4 klst. Penslið með sundurslegnu eggi og bakið við 190°C í 20-30 mínútur. Berið fram heitt.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Grænmetisbakstur

4 stk laukur stór
120 g smjör
500 g gulrætur
0,3 tsk salt
0,25 tsk pipar
1 tsk sykur
1 tsk steinselja söxuð
375 g sveppir litlir
1 stk blómkálshöfuð stórt
1 kg kartöflur kg
1 stk eggjarauður
1 msk rjómi
0 g sósa:
45 g smjör
45 g hveiti
3,75 dl mjólkdl
100 g ostur 26 % rifinn

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð