Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Grænmetisréttir > Brokkáls- og laukbakstur

Brokkáls- og laukbakstur

Matreiðsluleiðbeiningar

Sjóðið broccoli samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Látið leka vel af því. Ef notanður er venjulegur laukur notið þá 3 stk og er hann skorinn í 8 geira hver, en perlulaukurinn er hafður heill. Sjóðið laukinn í léttsöltu vatni í 10 mín.. Látið leka vel af honum. Hitið ofninn í 175°C. Bræðið 2 msk. af smjöri og bætið hveitinu út í. Þynnið með mjólkinni. Bætið salti og pipar út í. Látið sjóða þar til sósan fer að þykkna. Bætið rjóma- ostinum út í og hrærið í þar til hann er bráðinn. Blandið broccoli og lauk út í. Setjið í eldfast mót. Dreifið ostinum yfir. Bræðið 2 msk. af smjöri og blandið saman við brauðmylsnuna og dreyfið yfir ostinn. Bakið í 35 mín.. Berið fram heitt.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Brokkáls- og laukbakstur

300 g brokkál frosið
20 stk perlulaukur
30 g smjör
2 msk hveiti
0,25 tsk salt gróft
0,25 tsk pipar
1 bolli mjólk
100 g rjómaostur
100 g ostur 26 % rifinn
30 g smjör
1 bolli brauðmylsna

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð