Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Forréttir
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Forréttir > Reyktur lax með graslaukspannacotta og sýrðu hvítkáli

Reyktur lax með graslaukspannacotta og sýrðu hvítkáli

Hentar vel sem forréttur fyrir 8 persónur eða sem smáréttur fyrir 16 persónur.

Matreiðsluleiðbeiningar

Reyktur lax aðferð:

Klæðið lítil form eða kaffibolla með plastfilmu og klæðið svo með laxi. Setjið matalím í bleyti í kalt vatn hitið 3 dl af rjóma. Takið af hitanum og leysið matarlímið upp í rjómanum. Kryddið með salti og nýmuldum svörtum pipar. Bætið í ab mjólk og sýrðum rjóma að lokum stráið graslauk og lauk út i.
Hellið blöndunni í bollana og látið stífna minnst 4 tíma (Gott að laga daginn áður)
Sýrt hvítkál aðferð: 

Skerið hvítkálið í fína strimla, saxið laukinn blandið saman við olíu hlynsíróp og safa og börk af sítrónunni kryddið með salti og pipar.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Innihald

16 sneiðar reyktur lax (16-20)
3 dl rjómi
2 blöð matarlím
1 dl ab-mjólk
1 dl sýrður rjómi 18%
2 msk saxaður graslaukur
1 msk fínt saxaður laukur
0 salt og nýmulinn svartur pipar
 

Sýrt hvítkál

200 gr hvítkál
50 gr laukur
2 msk saxaður graslaukur
2 msk ólífuolía
1 msk hlynsíróp
0 safi og börkur af 1/2 sítrónu
0 salt og nýmulinn svartur pipar

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð