Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Fiskréttir
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fiskréttir > Ýsa að hætti Indverja

Ýsa að hætti Indverja

Matreiðsluleiðbeiningar

Hitið ofninn í 190°C. Hitið olíuna og smjörið í þykkbotna pönnu. Setjið allt heila kryddið á pönnuna og bíðið þar til kardimomm- urnar og sinnepsfræin opnast, og fennel og cumin fræin verða gyllt (tekur aðeins nokkrar sek.). Bætið hvítlauk, lauk og salti út í og látið krauma þar til laukurinn er farinn að fá lit. Bætið steyttu cumen út í og hrærið í, bætið þá steyttu coriander, turmeric og garam masala saman við og blandið vel. Bætið chilíinu út í og látið krauma nokkra stund. Lækkið hitann og bætið rjómaostinum út í og hrærið í þar til hann er bráðinn, bætið þá mjólkinni út í. Látið suðuna koma upp og hrærið í á meðan. Leggið fiskflökin í smurt eldfast mót og hellið hrærunni yfir. Bakið í u.þ.b. 30 mín. Berið fram með soðnum hrísgrjónum og papadums (indverskt brauð).

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Ýsa að hætti Indverja

1500 g ýsuflök roðflett
2 msk smjör
2 msk olía
4 stk negulnaglar
4 stk kardimommur
1 stk kanilstöng
1 tsk fennel seedós
2 tsk cumin seedós
1 tsk sinnepsfræ
5 stk hvítlauksgeirar saxaðir
3 stk laukur sneiddur
0,5 tsk salt
1 tsk cumin steytt
1 tsk coriander steytt
2 tsk turmeric
1 tsk garam masala
4 stk chili pipar grænn smátt saxað
200 g rjómaostur
0,75 dl mjólkdl

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð