Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Fiskréttir
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fiskréttir > Ofnbökuð heil fyllt ýsa

Ofnbökuð heil fyllt ýsa

Matreiðsluleiðbeiningar

Hitið ofninn í 200 °C. Hreinsið ýsuna vel að innan og hreistrið hana. Sama hvort fiskurinn er með haus eða ekki. Dreypið sítrónusafa og stráið salti innan í og utan á fiskinn. Leggið fiskinn í smurt eldfast mót, eða í litla ofnskúffu, ef að ofnskúffan er of stór, gerið þá skúffu úr álpappír í ofnskúffunni. Hrærið saman smjör, brauðmylsnu, papriku, lauk og steinselju. Setjið hræruna inn á milli þunnildanna og festið þau saman með tannstöngli eða grillprjóni. Sláið eggið í sundur og penslið fiskinn með því. Hyljið fiskinn með ostinum. Bakið í u.þ.b. 30 mín. Berið fram með hrásalati og hrærðum ósykruðum kartöflum.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Ofnbökuð heil fyllt ýsa

1000 g ýsa heil
35 g sítrónusafi
1 tsk salt
2 msk smjör
5 msk brauðmylsna ókrydduð
1 stk paprika söxuð
0,5 stk laukur saxaður
1 bún steinselja söxuð búnt
1 stk egg
400 g ostur 26 % rifinn

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð