Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Fiskréttir
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fiskréttir > Ofnbakaður þorskhnakki með austurlensku cous cous

Ofnbakaður þorskhnakki með austurlensku cous cous

Fyrir 4

Matreiðsluleiðbeiningar

Þorskur aðferð:
Þorskhnakkinn er skorinn í u.þ.b. 160 g steikur og lagður á ofnplötu sem búið er að smyrja með ólífuolíu. Þá er blandaður með jöfnum hlutföllum svartur pipar og rósa pipar og malað yfir fiskinn en passa verður að ekki sé sett of mikið, 1 tsk ætti að vera nóg fyrir hverja steik fyrir sig. Þá er salti stráð yfir hnakkann í hæfilegu magni og um 1 msk af ólífuolíu helt yfir hverja steik fyrir sig. Þorksurinn er bakaður á 180°C í 10 mínútur.

Cous cous aðferð
Vatni er komið fyrir til suðu og öllum þurrkryddunum bætt í vatnið ásamt kjötkrafti. Þegar vatnið hefur náð suðu er því helt yfir cous cousið í skál og plastað vel, látið standa í 5 mínútur og sett svo aftur í pottinn. Þá er ólífuolíunni bætt út í og smurostinum í litlum skömmtum út í og náð upp góðum hita. Hræra þarf vel í cous cousinu því það er fljótt að festast við botninn og brenna. Þegar verið er að hræra er cous cousið er saltað til eftir smekk.

Grísk jógúrtdressing aðferð:
Öllu blanadað saman í skál og sett á cous cousið og þorkurinn lagður ofan á.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Þorskur

700 g þorskhnakki
0 salt og rósa pipar
0 svartur pipar
0 ólífuolía
 

Cous Cous

750 ml vatn
500 g cous cous
2 tsk karrý
2 tsk kóríanderduft (má sleppa)
0,5 tsk chilliduft
1 teningur kjötkraftur
20 g papríkusmurostur
1 dl ólífuolía
0 salt eftir smekk
 

Grísk jógúrtdressing

0,5 dós grískt jógúrt
0 Fínt rifinn lime börkur af einni sítrónu
0 Safi úr ½ líme
10 g fínt rifinn ferskur engifer
1 msk hunang

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð