Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Fiskréttir
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fiskréttir > Ofnbakaður fiskur með Miðjarðarhafsgrænmeti og jógúrtsósu

Ofnbakaður fiskur með Miðjarðarhafsgrænmeti og jógúrtsósu

Matreiðsluleiðbeiningar

Fiskréttur aðferð:
Hitið ofninn í 200°C. Skerið fiskinn í bita og kryddið þá með pipar og salti. Penslið eldfast mót með dálitlu af olíunni og raðið fiskinum í það. Hitið afganginn af olíunni á pönnu og látið laukinn krauma í henni í nokkrar mínútur. Bætið þá kúrbít, papriku, tómötum og ólífum á pönnuna og látið krauma við meðalhita í nokkrar mínútur, eða þar til grænmetið er farið að mýkjast dálítið. Kryddið með pipar og salti og hellið grænmetinu yfir fiskinn. Stráið ostinum yfir og bakið í ofni í 15-20 mínútur, eða þar til fiskurinn er rétt steiktur í gegn. Berið fram t.d. með salati og jógúrtsósu.

Jógúrtsósa aðferð:
Blandið öllu vel saman, smakkið og bragðbætið eftir þörfum. Ef óskað er eftir þynnri sósu má hræra soði úr fiskfatinu saman við.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Fiskréttur

700 g roðflett og beinhreinsuð fiskflök – ýsa, þorskur eða annar hvítur fiskur (700-800 g)
2 msk olía
1 laukur, saxaður
1 kúrbítur, skorinn í bita
1 rauð paprika, skorin í bita
200 g kirsiberjatómatar
12 ólífur
150 g gratínostur
0 salt og pipar
 

Jógúrtsósa

250 ml jógúrt án ávaxta eða grísk jógúrt
1 msk ólífuolía
1 tsk hunang
2 hvítlauksgeirar, pressaðir
0 pipar og salt

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð