Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Fiskréttir
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fiskréttir > Laxahringur

Laxahringur

Matreiðsluleiðbeiningar

Laxahringur. Takið lítinn flanhring. Klippið út fjórar lengjur af bökunarpappír, hver lengja er jafnlöng og innanmál hringsins. Leggið þunnar sneiðar af reyktum laxi á pappírslengjurnar. Skerið út fjóra hringi úr sneiðunum sem lok. Roð-og beinhreinsið soðna laxinn. Takið hann sundur í litla bita. Blandið saman sýrðum rjóma og mæjonsósu. Smakkið til með kryddi. Blandið soðna laxinum í, ásamt reykta laxinum sem eftir er, skornum í litla bita. Setjið flanhringinn á þann disk sem bera á réttinn fram á. Leggið pappírslengjuna innan í hringinn með pappírinn að hringnum. Setjið laxablönduna í, sléttiðyfir borðið. Lyftið hringnum upp og flettið pappírnum af. Endurtakið á diskunum sem eftir eru. Setjið lokin yfir. Blandið saman piparrót og rjóma. Þeytið rjómann og kryddið með salti og pipar. Skreytið laxahringina með piparrót. Skreytið diskana með ferskum soðnum kavíar, dilli og sperglum,eða gúrkusneiðum. Berið fram sem forrétt. Hægt að búa til með góðum fyrirvara.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Laxahringur

300 g reyktur lax
300 g laxaflak soðið og kælt
100 g majones
100 g sýrður rjómi
50 g smjör mjúkt
0,25 tsk kerfill smátt saxaður
0,2 tsk dill
0,25 tsk salt
0,2 tsk pipar
0 g piparrótarrjómi:
1,5 dl rjómi dl
20 g piparrót rifinn
0,1 tsk salt
0,1 tsk pipar

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð