Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Fiskréttir
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fiskréttir > Lax steiktur í haframjöli

Lax steiktur í haframjöli

Matreiðsluleiðbeiningar

Lax steiktur í haframjöli  með ostavínberjasalati og rjómbökuðum
eplakartöflum
 
Aðferð:
Setjið heilhveiti og haframjöl í matvinnsluvél. Veltið laxastykkjunum upp úr haframjöl og hveitiblöndunni og steikið í smjöri á báðum hliðum, færið á eldfast fat og bakið við 180° í c.a. 10 mín
 
Rjómabakaðar eplakartöflur
Aðferð:
Skerið kartöflur í þunnar skífur og saxið eplin í bita. Setjið í eldfast form ásamt graslauknum. Kryddið með salti og pipar. Bræðið saman rjóma og rjómaost með kryddblöndu hellið yfir kartöflur og eplin. Bakið við 160° í 40 mínútur
 
Ostavínberjasalat
 
Aðferð:
Skerið vínberin í 2 hluta og hreinsið steina úr, Bætið í blaðlauk og papriku. Skeið Maribo kúmen ostinn í bita og blandið öllu saman ásamt kotasælu.


Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Lax í haframjöli

1 kg lax
3 dl haframjöl
1 dl hveiti
0 salt og pipar
2 msk smjör til steikingar
 

Rjómabakaðar eplakartöflur

600 gr kartöflur
2 stk epli
3 dl rjómi
125 gr rjómaostur með kryddblöndu
2 msk ferskur graslaukur
0 salt og pipar
 

Ostavínberjasalat

1 ds kotasæla með ananas
30 stk græn vínber
30 stk blá vínber
200 gr maribo-kúmen ostur
100 gr blaðlaukur
1 stk græn paprika skorin í bita

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð