Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Fiskréttir
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fiskréttir > Lax með appelsínu jógúrtsósu

Lax með appelsínu jógúrtsósu

Matreiðsluleiðbeiningar

Aðferð:

Skerið sellerírótina, gulrótina og paprikuna í teninga, hvítlaukinn og blaðlaukinn í sneiðar. Setjið grænmetið í pott og eldið í fiskikraftinum sirka 10 mínútur og  bætið síðan við rjómanum, appelsínusafanum og berkinum og sjóðið í 5 mínútur lækkið hitann.
Hrærið saman jógúrti og maisenamjöli bætið í sósuna ásamt ferski basilikum og látið sjóða við vægan hita í 2-3 mínútur.
 
Steikið laxinn gullbrúnan í smjöri á pönnu og kryddið með salti og nýmuldum svörtum pipar. 
Setjið í ofn við 160°c í 5-7 mínútur. Berið fram með sósunni og soðnum kartöflum.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Lax

800 gr lax
2 msk smjör
 

Sósa

100 gr sellerírót
100 gr rauð paprika
100 gr gulrót
4 tsk hvítlauksgeirar
50 gr blaðlaukur fínt sneiddur
0,5 dl ferskt basilikum fínt sneitt
2 dl fiskikraftur (vatn og teningur)
0,5 dl appelsínusafi
2 dl matreiðslurjómi
2 dl hrein jógúrt
1 msk maisenamjöl
1 tsk appelsína safi og börkur

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð