Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Fiskréttir
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fiskréttir > Lax að hætti Frakka

Lax að hætti Frakka

Matreiðsluleiðbeiningar

Látið sveppina krauma í smjörinu þar til þeir eru mjúkir. Bætið helmingnum af vatni og hvítvíni út í. Látið krauma við vægan hita í u.þ.b. 5 mín. Stráið salti og pipar yfir. Látið leka af sveppunum og geymið vökvann. Dreypið sítrónusafa yfir laxasneiðarnar hver sneið á að vera um 200 g og látið standa í 10 mín. Setjið sveppasoð og það sem eftir er af hvítvíni og vatni í víðan pott, leggið fiskinn þar í og látið malla við vægan hita ( þannig að rétt sjáist að vatnið hreyfist ) í u.þ.b. 15 mín. Hollandaisesósa: Hitið saman pipar, edik og vatn, sjóðið þar til rétt um 1 msk. er eftir. Bræðið smjörið og kælið lítið eitt. ** Þeytið eggjarauður og ediksblöndu saman yfir vatnsbaði, þar til hræran verður þykk og glansandi. Þeytið smjörið saman við í dropatali til að byrja með, síðan í mjórri bunu. Saltið og piprið. Bætið sítrónusafa saman við. Haldið sósunni heitri yfir vatnsbaði. Ekki er hægt að hita sósuna upp. **í blandara: Þeytið rauður og ediksblöndu í nokkrar mín. Hellið smjörinu í mjórri bunu út í, látið blandarann ganga á meðan. Kryddið. Fisk og skaldyr bls.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Lax að hætti Frakka

150 g sveppir ferskir sneiddir
30 g smjör
1,5 dl hvítvín dl
1 dl vatn dl
4 sn lax sn
35 g sítrónusafi ferskur
0,5 tsk salt
0,25 tsk pipar
0 g hollandaisesósa:
250 g smjör
1 tsk pipar grófmalaður
1 msk hvítvíns edik
1 msk vatn
5,4 stk eggjarauður
15 g sítrónusafi
0,5 tsk salt

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð