Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Fiskréttir
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fiskréttir > Kreólarækjur

Kreólarækjur

Matreiðsluleiðbeiningar

Afhýðið tómatana með því að dýfa þeim í sjóðandi heitt vatn í 10 sekúndur (telja upp að 10) og fletta hýðinu af, og stappið tómatana. Látið lauk, papriku, sellerí, hvítlauk og lárviðarlauf krauma í smjörinu í nokkrar mínútur, eða þar til það er orðið mjúkt. Bætið paprikudufti, tómötum, tómatsafa, Worcestershire sósu og Tabasco sósu saman við. Látið suðuna koma upp og látið sjóða niður um fjórðung. Saltið (farið varlega með saltið þar sem rækjurnar geta verið saltar). Bætið rjómaostinum út í og hrærið allan tímann, þar til osturinn er bráðinn. Látið sjóða í nokkrar mínútur. Bætið rækjunum út í. Látið suðuna koma upp og dragið af hitanum. Látið réttinn standa smástund. Smakkið þá réttinn til með salti ef þarf. Berið fram með soðnum hrísgrjónum.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Kreólarækjur

75 g smjör
1 stk laukur skorinn í tvennt og sneiddur þunnt
1 stk paprika græn skorin í tvennt og sneidd þunnt
2 stk sellerístilkar þunnt sneiddir
2 stk hvítlauksgeirar sneiddir þunnt
1 stk lárviðarlauf
2 msk paprikuduft
450 g tómatar velþroskaðir
1 bolli tómatsafi
4 msk worcestershire sósa
5 dro tabasco sósa dropar
0,3 tsk salt
200 g rjómaostur
1,5 kg rækjur kg

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð