Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Fiskréttir
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fiskréttir > Heilagfiski með súpu

Heilagfiski með súpu

Hollt og gott með eplasalati á rófubeði (sjá Sósur og salöt).

Matreiðsluleiðbeiningar

Setjið mysu, salt og 1/2 l vatn í pott og látið suðuna koma upp. Látið lúðuna út í og sjóðið í 5 mín. Takið pottinn af hellunni og látið fiskinn liggja í soðinu um stund. Færið hann síðan upp á fat og leggið yfir hann léreftsklút eða álþynnu. Best er að geyma fiskinn í hitahólfi ef hægt er. Skolið sveskjurnar og rúsínurnar og sjóðið í soðinu í 5-10 mín. ásamt lárviðarlaufi. Hrærið hveitið út í 1/2 dl af vatni og jafnið súpuna. Látið sjóða í 5 mín. Þeytið eggjarauður og sykur í skál og hrærið súpuna saman við. Setjið aftur í pottinn, hitið að suðu (má ekki sjóða) og bragðbætið með rjómanum (má sleppa). Berið lúðuna og súpuna fram heita.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

heilagfiski með súpu

5 dl mysa
5 dl vatn
2 tsk salt
4 lárviðarlauf
800 g lúða í sneiðum
11 sveskja/ur
1,5 msk rúsínur
0,5 dl vatn
10 g hveiti
25 g sykur
2 eggjarauða/ur
1 dl kaffirjómi

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð