Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Fiskréttir
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fiskréttir > Gráðaostafyllt fiskflök

Gráðaostafyllt fiskflök

Matreiðsluleiðbeiningar

Hrærið saman steinselju, lauk, graslauk, smjöri og gráðaosti. Blandið anislíkjör, sítrónusafa, salti og pipar saman við. Kælið í 20 mín.. Skiptið fyllingunni á flökin og vefjið þeim upp frá breiðari endanum til hálfs, brjótið þá inn brúnirnar og vefjið alveg upp. Veltið rúllunum upp úr hveitinu, þá eggjum sem í hefur verið blandað Tabasco og Worcestershire sósu, og að síðustu upp úr brauðmylsnu. Frystið í 3 klst. Hitið ofninn í 180°C. Setjið rúllurnar á plötu klædda bökunar- pappír og bakið í 30 mín. , eða þar til fallegur bökunarlitur er kominn á þær. Berið fram með hrísgrjónum og berið sítrónu með.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Gráðaostafyllt fiskflök

1 tsk steinselja söxuð
1 stk karlottulaukur saxaður
1 tsk graslaukur saxaður þurrkaður
150 g smjör
180 g gráðaostur
2 msk anislíkjör
35 g sítrónusafi
0,5 tsk salt
0,25 tsk pipar
8 stk smálúðuflök
1 dl hveiti dl
2 stk egg
0,5 tsk tabasco sósa
1 tsk worchesterhire sósa
1,5 dl brauðmylsna dl

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð