Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Fiskréttir
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fiskréttir > Glóðaður lax með rjómarósapiparsósu

Glóðaður lax með rjómarósapiparsósu

Ljúffengur lax borinn fram með heitri sósu og pasta.

Matreiðsluleiðbeiningar

Bræðið smjörið, blandið salti og blóðbergi saman við. Penslið laxinn með kryddblöndunni og glóðið í u.þ.b. 5 mín. á hvorri hlið. 3 - 400 g pasta. Sjóðið eftir leiðbeiningum á umbúðum.

Sósa:
Látið rósapiparinn malla í hvítvíninu í 5-10 mín. Sneiðið laukinn í þunnar sneiðar og látið hann krauma í smjörinu á pönnu þar til hann verður fallega brúnn. Bætið vínblöndunni (má vera óáfeng), rjómanum, tómatsósunni og kryddinu út í og sjóðið við vægan hita í u.þ.b. 10 mín. eða þar til sósan byrjar að þykkna, jafnið með sósujafnara og kryddið meira ef vill. Berið sósuna fram með glóðuðum laxi og pasta.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

glóðaður lax

5 sn lax
1 tsk salt
15 g smjör
1 tsk blóðberg (timian)
 

rjómarósapiparsósa

2 laukur/ar
15 g smjör
2 msk rósapipar
1 msk tómatsósa
2 dl hvítvín
0,25 l rjómi
1 tsk fiskikraftur
0,6 msk ljós sósujafnari

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð