Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Fiskréttir
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fiskréttir > Frönsk rauðspretta

Frönsk rauðspretta

Matreiðsluleiðbeiningar

Hitið ofninn í 275°C.. Þvoið sveppina og sneiðið þá. Setjið laukinn og helminginn af sveppunum í víða pönnu, smurða með smjöri. Brjótið flökinn í tvennt og raðið yfir sveppina. Dreifið því sem eftir er af sveppum yfir. Dreifið sítrónusafanum yfir, og þá víni. Látið sjóða undir loki í 5 mín. Takið fiskinn upp og raðið í eldfast mót. Látið sveppina vera sem eru ofan á fiskinum, en látið sveppi og lauk sem voru undir vera eftir í soðinu. Breiðið álpappír yfir fiskinn. Sjóðið soðið niður um helming. Bætið 2 dl af rjóma út í, sjóðið. Setjið rjómaostinn út í og látið hann bráðna, hrærið stöðugt í. Látið sjóða í 5 mín.. Dragið pönnuna af hitanum og kryddið. Hrærið rauðunni saman við, þeytið létt. Hrærið smjörinu út í. Þeytið rjóman sem eftir er ( 1 dl ), blandið honum saman við sósuna. ( ekki hita sósuna eftir að rauðan er sett í ). Fjarlægið eins mikið soð úr eldfasta mótinu, sem runnið hefur úr fiskinum og hægt er. Hellið sósunni yfir, og stráið rifna ostinum yfir. Bakið í 5 mín.. Berið fram með soðnum eða hrærðum kartöflum. Hægt er að búa réttinn til með góðum fyrir vara og hita þá í 10 mín.. Gott er að breita til og setja aspas, skeldýr eða ferskt krydd í sósuna t.d. dill, graslauk, steinselju eða hvað sem vill.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Frönsk rauðspretta

500 g rauðsprettuflök
200 g sveppir
1 stk laukur saxaður
2 dl hvítvín þurrt dl
1 msk sítrónusafi
3 dl rjómi dl
1 stk eggjarauður
100 g rjómaostur
1 msk smjör mjúkt
0,8 tsk salt
0,1 tsk cayennepipar
75 g ostur 26 % rifinn

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð