Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Fiskréttir
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fiskréttir > Flatfiskrúllur

Flatfiskrúllur

Bragðgóður fiskréttur með grænmeti og sósu, borinn fram með ananas og kartöflum.

Matreiðsluleiðbeiningar

Roðdragið fiskinn og hreinsið. Skiptið flökunum niður í hæfileg stykki til þess að búa til rúllur. Stráið dilli á fiskstykkin og rúllið þeim upp, festið með tannstöngli. Hitið vökvann í víðum potti og kryddið, látið rúllurnar í sjóðandi vökvann (eitt lag) og sjóðið við vægan hita í 4-5 mín. Takið pottinn af hitanum og látið fiskinn bíða í soðinu.

Grænmeti og sósa:
Skerið lauk og papriku í jafnar ræmur og látið krauma í smjöri þar til grænmetið verður mjúkt og gyllt. Takið grænmetið af pönnunni og hellið rjómanum, ananassafanum (ananasinn verður notaður sem meðlæti) og fisksoðinu út í. Kryddið rjómann og látið krauma á pönnunni í 3-5 mín. Jafnið með maísenamjöli (eða hveitijafningi).



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

rúllur

800 g flatfiskur í flökum
4 dl vatn
2 dl mysa
5 piparkorn
1 tsk gróft salt
1 skm dill (ferskt ef til er)
 

grænmeti og sósa

2 laukur/ar
0,5 paprika/ur (gul/ar)
0,5 paprika/ur (græn/ar)
15 g smjör
2,5 dl kaffirjómi
1 lítil ananasdós
1 dl fisksoð
2 tsk fiskikraftur
0,5 tsk sítrónupipar
3 msk maísenamjöl

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð