Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Fiskréttir
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fiskréttir > Fiskrönd með skelfisksósu

Fiskrönd með skelfisksósu

Góður aðalréttur með soðnum kartöflum og grænu salati.

Matreiðsluleiðbeiningar

Hakkið fiskinn eða saxið í kvörn. Blandið mjöli og kryddi saman við fiskinn og hrærið vel. Blandið kaldri mjólkinni smám saman út í og hrærið vel á milli í hrærivél eða blandara. Fiskdeigið á að verða samfellt og létt. Ef notaður er frosinn fiskur þarf minni vökva. Látið fiskdeigið í smurt mót með álpappír yfir og bakið í vatnsbaði í ofni við um 200°C í 50-60 mín.

Sósa:
Saxið lauk og papriku og látið krauma í smjöri. Bætið fiskikraftinum út í og síðan vökvanum. Kryddið og sjóðið í 5 mín. Hristið hveitijafninginn og jafnið út í heitan vökvann. Sjóðið við vægan hita í 5 mín. Smækkið og hreinsið hörpuskelfiskinn. Bætið rækjum og hörpuskelfiski út í sósuna og látið hitna vel í gegn, sjóðið ekki. Bætið kryddi við ef þarf.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

fiskrönd

600 g ýsuflök (hreinsuð)
2 msk kartöflumjöl
3 msk hveiti
1 tsk fiskikraftur
0,5 tsk season all
1 tsk laukduft
0,5 tsk karrí
1,5 tsk salt
5,5 dl mjólk
 

skelfisksósa

0,5 laukur/ar
0,5 paprika/ur (rauð/ar)
15 g smjör
2 tsk fiskikraftur
1 dl rjómi
2 dl vatn
2 dl mjólk
1 tsk laukduft
1 tsk soja
0,5 tsk salt
20 g hveiti
0,5 dl vatn (kalt)
100 g rækjur
100 g hörpuskelfiskur

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð