Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Fiskréttir
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fiskréttir > Fiskirönd

Fiskirönd

Matreiðsluleiðbeiningar

Skerið fiskinn í bita og setjið í blandara, bætið rjómaosti út í og blandið. Bætið eggjahvítunum út í, blandið vel. Þrýstið blöndunni í gegnum sigti. Setjið blönduna í skál og hrærið vel, bætið sýrða rjómanum í smátt og smátt, hrærið vel í á milli. Kryddið eftir smekk. Geymið á köldum stað. Fletjið laxaflakið út á milli tveggja plastfilma með sléttu hliðinni á buffhamri. Skerið það í 8 bita svipaða að stærð og kolaflökin. Gott er að fletja þau einnig út ef þarf. Hreinsið spínatið og sjóðið það í léttsöltu vatni. Látið leka vel af þeim og þerrið. Skerið hýðið af zucchiní og saxið það mjög smátt, saxið pap- rikuna mjög smátt. Smyrjið hringlaga mót vel með smjöri. Raðið lax og kola- flökunum til í mótið, látið þau lafa út fyrir mótið bæði í innri hringnum og út fyrir. Látið flökin rétt aðeins ganga yfir hvert annað. Smyrjið þunnu lagi af fiskideigi yfir flökin. Raðið spínat blöðunum yfir og látið þau einig ná út fyrir báðar brúnir mótsins. Blandið smátt söxuðu zucchíni hýði og smátt saxaðri papriku saman við fiskideigið. Fyllið mótið með fiski- deiginu. Leggið endana á flökunum og spínatinu yfir. Bakið í vatnsbaði við 190-200°C., í 15-20 mín.. Takið úr ofninum og látið standa í 5-10 mín áður en röndinni er hvolft úr mótinu á klút, þannig að allur vökvi fari af. Setjiið aftur í mótið og hvolfið á fat eða bretti. Skerið fiskiröndina í bita og setjið á hvern disk, setjið örlítla sósu yfir og dragið úr sósunni. Berið það sem eftir er af sósunni fram með í skál. Berið soðnar kartöflur og salat með.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Fiskirönd

0 g fiskdeig:
250 g ýsuflök roðflett
1 stk eggjahvítur
50 g rjómaostur
2 dl sýrður rjómi 18% dl
0,5 tsk salt
0,25 tsk pipar
0 g fiskurinn:
8 stk kolaflök
500 g laxaflak roðflett
500 g spínat blöð
1 stk zucchini
1 stk paprika rauð
0,5 tsk salt
0,25 tsk pipar

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð