Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Fiskréttir
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fiskréttir > Fiskibaka

Fiskibaka

Holl og bragðgóð baka, berið fram með hrásalati.

Matreiðsluleiðbeiningar

Deig:
Hnoðið deigið vel saman og kælið.

Fylling:
Saxið papriku og lauk, látið krauma í smjöri. Stráið hveiti yfir (takið af hitanum á meðan) hrærið vel í, bætið soði (má nota 2 dl vatn og ½ dl mysu í stað 2½ dl af fisksoði með mysu) og kaffirjóma út í. Kryddið og látið sjóða í 4-6 mín. Takið u.þ.b. 2/3 af deiginu og þrýstið því út í mótið með hendinni, pikkið með gaffli. Bakið í 8-10 mín. við 210°C. Bætið fiskinum út í jafninginn, kryddið og hellið í deigskelina. Fletjið það sem eftir er af deiginu út í köku á stærð við mótið og leggið yfir. Þrýstið vel saman á börmum og pikkið með gaffli. Penslið með eggjablöndu. Bakið í 10-15 mín. við 210°C.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

deig

200 g smjör
250 g hveiti
3 msk vatn
 

fylling

550 g soðinn hreinsaður fiskur (t.d. ýsa eða lúða)
1 paprika/ur
1 laukur/ar
1 epli (gul/t)
30 g smjör
25 g hveiti
2,5 dl fisksoð með mysu
1 dl kaffirjómi
2 tsk fiskikraftur
1 tsk soja
1 tsk season all
0,25 tsk salt

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð