Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Brauð
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Brauð > Súpuhorn

Súpuhorn

Æðisleg volg með súpu eða forrétti. Þau má frysta.

Matreiðsluleiðbeiningar

Leysið gerið upp í ylvolgu vatni. Blandið skyri, mjúku smjöri, salti, sykri, eggjum og kryddi út í og hrærið vel. Blandið 3/4 af hveitinu saman við og hrærið deigið vel þannig að það verði seigt. Látið lyfta sér í 40-50 mín. Hnoðið deigið vel og bætið hveiti saman við eftir þörfum. Skiptið því í þrjá hluta og fletjið hvern hluta út í kringlótta köku og skiptið henni síðan í átta hluta. Stráið söxuðum lauk (eða smyrjið Dijon sinnepi) á miðju hvers hluta og vefjið upp í horn, byrjið frá breiðari endanum. Setjið hornin á plötu, með samskeytin niður svo þau opnist ekki í bakstrinum. Látið þau hefast í 20-30 mín. Penslið með vatni og stráið korni yfir, ef vill. Bakið við 220°C í miðjum ofni í 10-15 mín.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

súpuhorn

4 tsk þurrger
1 dl vatn (ylvolgt)
5 g sykur
2 dl rjómaskyr
1 tsk gróft salt
2 egg
3 tsk oregano
50 g smjör
500 g hveiti
0,75 laukur/ar

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð