Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Brauð
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Brauð > Sumarhátíð

Sumarhátíð

Frábær terta með möndluflögum og jarðarberjum

Matreiðsluleiðbeiningar

Möndlubotnar:
Saxið möndlur og hnetur í kvörn. Stífþeytið hvítur, bætið sigtuðum flórsykri í og þeytið í 2-3 mín. Blandið möndlum og hveiti varlega saman við. Bakið 2 botna 18 sm í þvermál í um 12 mín. við 170°C.

Svampbotnar: Stífþeytið egg og sykur. Sigtið kakó, hveiti og lyftiduft og blandið við hræruna. Bakið í hringformi, 24 sm í þvermál, við 170°C í um 20-25 mín. Kljúfið botninn í tvennt.

Fylling:
Þeytið rjómann, smækkið rúsínurnar og blandið saman við ásamt vanillusykri. Bleytið botnana með ávaxtasafa. Leggið kökuna saman þannig: Svampbotn, fylling, svampbotn, möndlubotn, fylling, möndlubotn (efst).

Krem:
Leggið matarlím í bleyti í kalt vatn. Þeytið eggjarauður og sykur í þykka froðu. Þeytið rjómann. Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði. Hellið af matarlíminu og bræðið í vatnsbaði. Kælið með 1 msk. af köldu vatni og hellið út í eggjafroðuna, hrærið vel í á meðan. Hellið súkkulaðinu út í og síðast rjómanum. Látið kremið bíða í 5-10 mín. Smyrjið yfir kökuna og skreytið með möndluflögum og jarðarberjum. Látið kökuna bíða í 6-8 klst. Gott með mjúkþeyttum rjóma.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

súkkulaðikrem

2 bl matarlím
200 g suðusúkkulaði
3 eggjarauða/ur
25 g sykur
1 dl rjómi
1 skm möndluflögur
1 skm jarðarber
1 skm þeyttur rjómi til að bera með
 

fylling

4 dl rjómi
200 g súkkulaðirúsínur (ljósar)
0,5 tsk vanillusykur
1 skm ávaxtasafi (t.d. ananassafi)
 

möndlubotnar

125 g möndlur (með hýði)
50 g heslihnetur
3 eggjahvíta/ur
125 g flórsykur
25 g hveiti
 

súkkulaðisvampbotn

4 egg
150 g sykur
130 g hveiti
1 tsk lyftiduft
2 msk kakó

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð