Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Brauð
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Brauð > Snúningar

Snúningar

Glansandi og glóðvolgir.

Matreiðsluleiðbeiningar

Deig:
Velgið mjólkina í 37°C og bætið gerinu út í. Bræðið smjörið. Blandið sykri, salti og hluta af hveitinu út í vökvann og hrærið vel. Blandið bræddu smjörinu út í og síðan því sem eftir er af hveitinu. Látið deigið lyfta sér í u.þ.b. 40 mín. í skál, breiðið þurran klút yfir. Hnoðið deigið, bætið hveiti út í eftir þörfum. Deigið á að vera mjúkt og sleppa vel hendi.

Fylling:
Fletjið deigið út í köku 40x60 sm. Penslið með smjöri og stráið kardimommum og sykri yfir. Brjótið kökuna inn á við frá báðum langhliðum þannig að kakan verði þreföld. Skerið lengjuna í 2 sm breiðar ræmur. Skerið upp í ræmurnar en hafið heilt á öðrum endanum. Snúið upp á lengjuna þannig að hún líkist fléttu. Látið lyfta sér í u.þ.b. 30 mín. Penslið með eggjablöndu og stráið perlusykri og möndluflögum yfir. Bakið við 230°C í miðjum ofni í 8-10 mín.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

deig

100 g smjör
5 dl mjólk
4 tsk þurrger
0,5 tsk salt
85 g sykur
600 g hveiti
1 skm möndluflögur og perlusykur (skreyting)
 

fylling

100 g smjör
3 tsk kardimommur
40 g sykur

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð