Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Brauð
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Brauð > Snúðar með kanilsniði

Snúðar með kanilsniði

Góðir í kaffinu með ískaldri mjólk.

Matreiðsluleiðbeiningar

Deig:
Hitið mjólkina í 37°C og blandið gerinu saman við. Bætið sykri, salti og kardimommum út í. Bræðið smjörið. Blandið u.þ.b. 2/3 af hveitinu ásamt smjörinu saman við mjólkurblönduna og hrærið vel þannig að deigið verði eins og mjög þykkur grautur. Látið það lyfta sér í 40-50 mín. Hnoðið deigið, bætið hveiti saman við þar til það verður viðráðanlegt, mjúkt og sleppir vel hendi. Fletjið deigið út í ílanga köku u.þ.b. 60x30 sm.

Fylling:
Blandið saman kanil og sykri, bræðið smjörið og rífið eplið. Penslið kökuna með smjörinu og stráið kanilsykrinum yfir og síðan rifna eplinu. Rúllið kökunni upp. Skerið í 12-14 jafna bita og setjið á plötu með samskeytin niður. Látið lyfta sér í 30 mín. Þrýstið með hendinni í miðjuna á hverjum snúð og penslið með eggjablöndu. Stráið perlusykri yfir og bakið við 200°C í 12-15 mín. eða þar til snúðarnir eru fallega brúnir.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

deig

3 dl mjólk
3 tsk þurrger
50 g smjör
25 g sykur
1 tsk gróft salt
1 tsk kardimommur
400 g hveiti
 

fylling

1 epli
1 tsk kanill
25 g sykur
25 g smjör

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð