Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Brauð
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Brauð > Snúðar með ítölskum keim

Snúðar með ítölskum keim

Góðir snúðar með súpu eða ölglasi.

Matreiðsluleiðbeiningar

Blandið mjólk og vatni saman í skál þannig að það verði 37° og hrærið gerið út í. Bætið sykri, salti og olíu út í ásamt hluta af hveitinu eða þar til blandan verður mjög þykkur grautur. Stráið hveiti yfir og látið lyfta sér í 30-40 mín.

Fylling:
Blandið öllu saman í pott og sjóðið við vægan hita í u.þ.b. 20 mín. eða þar til fyllingin hefur þykknað nokkuð. Kælið fyllinguna í vatnsbaði. Takið deigið og hnoðið það í létt deig. Skiptið því í tvo hluta og fletjið hvorn fyrir sig út. Smyrjið fyllinguna yfir útflatt deigið og rúllið upp. Skerið u.þ.b. 2 sm þykka snúða og raðið þeim á plötu. Látið lyfta sér í 20-30 mín. Penslið með olíu og bakið í miðjum ofni við 200°C í u.þ.b. 20 mín.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

deig

5 tsk þurrger
3 dl mjólk
3 dl vatn (heitt)
1 tsk salt
15 g sykur
2 msk olía
660 g hveiti
 

fylling

1 ds niðursoðnir tómatar
2 msk chillisósa
3 msk tómatsósa
1 msk matarolía
7,5 tsk oregano
1 tsk salt
1,5 tsk hvítlauksduft
25 g sykur

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð