Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Brauð
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Brauð > Rúsínubrauð með hunangi

Rúsínubrauð með hunangi

Gott sætt brauð með glasi af ískaldri mjólk.

Matreiðsluleiðbeiningar

Hitið mjólkina í 37°C og blandið gerinu saman við. Blandið helmingnum af rúgmjölinu og hveitinu saman við vökvann og hrærið vel (verði þykkur grautur). Látið deigið lyfta sér í u.þ.b. 50-60 mín. Hrærið þá volgu hunangi, rúsínum, gróft söxuðum hnetum og kryddi saman við og hnoðið vel afganginum af mjölinu upp í deigið (það verður frekar þétt).
Búið til tvö brauð á plötu, ílöng eða hringlaga og látið lyfta sér (u.þ.b 40 mín). Skerið raufar í brauðið og penslið með vatni.
Bakið við 180°C í 40-50 mín. á neðstu rim í ofni.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

rúsínubrauð með hunangi

4 tsk þurrger
5 dl mjólk
300 g rúgmjöl
350 g hveiti
1 tsk salt
0,5 tsk negull
1 tsk allrahanda
6 msk hunang
120 g rúsínur
50 g hnetur

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð