Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Brauð
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Brauð > Piparbrauð

Piparbrauð

Frábært með grænmetislasagna.

Matreiðsluleiðbeiningar

Blandið saman mjólk og vatni (u.þ.b. 37°C) og setjið þurrgerið saman við. Blandið söxuðum lauk, pipar salti og sykri út í mjókurblönduna ásamt hveitinu og hrærið vel. Skiljið u.þ.b. 100 g eftir af hveitinu. Látið lyfta sér í 40-50 mín. eða u.þ.b. um helming. Hnoðið og bætið hveiti saman við eftir þörfum þar til deigið sleppir vel hendi. Mótið 2 ílöng brauð og látið lyfta sér á plötu í 15-20 mín. Skerið í brauðið og penslið með vatni. Bakið á neðstu rim í ofni við 200-210°C í 15-20 mín.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

piparbrauð

2,5 dl mjólk
1,5 dl vatn (heitt)
3 tsk þurrger
1 tsk gróft salt
10 g sykur
2 msk laukur
1 tsk svartur pipar
450 g hveiti

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð