Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Brauð
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Brauð > Marsípankringla

Marsípankringla

Hringurinn er bestur nýbakaður. Hann má frysta og hita í ofni.

Matreiðsluleiðbeiningar

Hitið mjólk í 37°C og bætið geri út í. Blandið kardímommum, salti, sykri og eggjum út í og því næst hveiti og mjúku smjöri. Takið 100 g af hveitinu frá. Hrærið deigið vel saman og látið það lyfta sér í u.þ.b. 1 klst. Hnoðið það vel, bætið hveiti í og fletjið í aflanga köku u.þ.b. 25x80 sm.

Fylling:
Jafnið rifnu marsípani, appelsínuberki og súkkati yfir og rúllið kökunni upp. Mótið hring á plötu og látið samskeytin snúa niður. Klippið inn í hringinn utan frá u.þ.b. 2/3 með 2 sm millibili og hagræðið hverjum hring þannig að sjáist í sárið. Látið lyfta sér í 20 mín. Penslið með eggi og bakið við 200°C í 15-20 mín

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

deig

1 dl mjólk
3 tsk þurrger
100 g smjör
1 tsk salt
2 tsk kardimommur
1 egg
15 g sykur
400 g hveiti
 

fylling

150 g marsípan
50 g þurrkaður appelsínubörkur
50 g súkkat

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð