Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Brauð
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Brauð > Kryddkaka með mokkakremi

Kryddkaka með mokkakremi

Þessi kaka er kjörin jólakveðja t.d. pökkuð inn í sellófan með slaufu.

Matreiðsluleiðbeiningar

Þeytið saman egg og sykur. Bræðið smjörið, látið rjúka og blandið því saman við eggin ásamt sýrða rjómanum. Blandið hveiti, lyftidufti og kryddi saman við. Bakið kökuna í 2ja lítra formi við 170°C á neðstu rim í ofni í 50-60 mín. Þessa köku má baka í mismunandi formi og einnIg setja á hana mokkakrem, eins og myndin sýnir.

Krem:
Hrærið smjörið vel og bætið sigtuðum flórsykri saman við. Leysið neskaffið upp í vatninu og bætið út í kremið ásamt rjóma og vanillu. Kljúfið kökuna og setjið krem á milli. Jafnið kremi yfir kökuna. Kælið kökuna um stund áður en hún er borin fram.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
150 g smjör
3 egg
300 g sykur
1,5 ds sýrður rjómi (10%)
220 g hveiti
3 tsk lyftiduft
2 tsk engifer
2 tsk negull
2 tsk kanill
200 g smjör
400 g flórsykur
0,5 dl rjómi
1 tsk neskaffi
1 tsk vatn
1,5 tsk vanilludropar

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð